engelen
08.10.2007 16:21:33 / hansen_i_dk

Ég er vægast sagt kominn með drullu af þessu.............

 Maður er búinn að reyna að blogga og ekkert gerist,maður skrifar nokkrqar línur og þær vistast ekki alltaf þannig að maður gerir aftur og aftur og aftur og...........

Hver nennir svona DJÖFULLSINS RUGLI:evil:

Ekki ég þannig að ég er kominn með nýja síðu sem vistuð er hjá samkeppnisaðilanum :klikk:

Annars á Sindri litli frændi minn afmæli í dag og er orðinn 5 ára kallinn.

Innilega til hamingju með afmælið sindri minn.

Annars geta þeir sem vilja kíkt á síðuna mína sem er  http://hansenidk.blog.is

Þeir sem ekki vilja það geta farið í rassgat :haha:

Einn pínu pirr 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 19:07:45 / hansen_i_dk

Stelpa,stelpa og kona!!!!

Jæja þá er það komið á hreint að strákurinn minn er svo eftir allt bara stelpa þannig að skoðunarkönnunin verður tekin niður og ÓSKAR........þú getur hætt að hamast svona ;)

Við fórum sem sagt á spítalann í dag þar sem Guðrúnu leist ekki alveg á það að það var eitthvað blóð í klósettinu og við fórum þess vegna á sjúkrahúsið til að láta kíkja á þetta og var þetta allt í góðu lagi,og það sem meira er að þarna fengum við bestu þjónustu sem við höfum fengið á sjúkrahúsi til þessa og greinilegt að þetta sjúkrahús hvað varðar þjónustu er allavega 10.stigum hærra en landspítalinn.

Ein ljósmóðirin sem var í eldri kantinum hefði samt alveg mátt fara í einhvern annan slopp.

Jebb hún hefur ábyggilega fengið þennan fyrir svona á að giska 20-25 kg og hann var hnepptur og maður sá allt sem maður ekki vildi sjá,eins og td.hvernig nærbuxum hún var í osfrv.:S

Frekar svona ekki fallegt.

Þarna fengum við svo líka að kíkja á skvísuna og varð maður frekar sáttur við það að fá aðra stelpu,bara feginn að fá heilbrigt barn.

Annars er maður kominn í ekkert smá minnihluta hér á heimilinu og verður fróðlegt að sjá hvort maður verði svona meiri metró maður eftir næstu stelpu,tali eins og hommi og fari að skæla eftir að horfa á framhaldsþátt í sjónvarpinu.

NEIHEI...........fyrr dett ég dauður 8|

Annars er bara gott að frétta,Raikonen í fyrsta,Hamilton datt út :klikk: og allt er opið ennþá.

Við tókum helgina með ró og sukkuðum ekkert smá í gær,enda nammidagur.

Fórum eiginlega ekkert út úr húsi,horfðum á dvd og átum nammi,eldaði síðan nautasteikur með bearnaise og tilheyrandi,borðuðum meira nammi og horfðum meira á kassann.

Í dag vorum við svo boðin í mat til Valda og Kristínar þar sem við borðuðum grísalundir fylltar með hvítlauksosti og tilheyrandi og fengum svo eplapie í dessert sem var ekkert smá gott.

Núna er maður eins og veltikarl sem er kannski ekkert skrítið þar sem hreifing hefur verið í lágmarki og mikið étið um helgina.

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 18:47:23 / hansen_i_dk

UNIVERSITY????????

Wúúhuuu HeHeHeHe

Það hlaut að koma að því................

Jebbs ég farinn í HÁSKÓLA 8)

Það er nefnilega svo að ástæða þess að við fluttum af landi brott og til kóngsinns köben,var sú já eða er sú að Guðrún mín ákvað að fara í háskóla hér í DK.

Hvernig er þetta núna  :$  jebb Guðrún heima ólétt og fyrsti dagurinn minn í háskóla á morgun 8|

Annars reikna ég ekkert með að fólk sem mig þekkir hafi nokrra trú á því að ég sé að fara í háskóla ,þá segi ég ykkur það bara að ég er að fara að gefa þessum dúddum að éta.

Þetta er sem sagt Copenhagen University sem staðsettur er á Amager...þíðir ca.30 mín akstur.

 Annars er bara fínt að frétta af okkur öllum og er Andrea búin með fyrsta daginn sinn í dönskukennslu og fannst henni það bara mjög gaman.

Guðrún er ennþá grumpy

og væntanlegur sonur minn :haha:  hefur það gott eftir stærð kúlunnar allavega.

 

Vika 30

  • Barnið getur nú bæði fundið bragð og skynjað sársauka.
  • Það er 27 sm og vegur 1,5 kg.
  • Höfuðið er næstum 8 sm að þvermáli.
  • Fæturnir næstum 6 sm langir.
  • Hrukkótt húðin sléttist mikið.
  • Hjá drengjum eru eistun nú komin niður í pung.
  • Barnið stjórnar nú sjálft líkamshita sínum.
  • Hægðatregða er algengur kvilli á meðgöngu.  Hreyfðu þig reglulega, borðaðu trefjaríkt fæði og drekktu vel. 

30 Week Old Fetus

 

Svona lítur hann einhvernveginn út í dag....

Annars er ég farinn að sofa í hausinn á mér þar sem það er skóli hjá mér í fyrramálið ;) 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 10:59:03 / hansen_i_dk

5.ára um........daginn

Jæja þá,það hlaut að koma að því að maður gerði eitthvað hér.

Þetta er búið að vera svona blanda af leti,tölvuveseni og svo smá fikti ;)

Ég var nefnilega ekkert smá fyndinn og breytti aðgenginu að bloggsíðunni svo að Guðrún kæmist ekki inn á hana til að breyta.Treysti henni ekki RASSGAT þegar kemur að skoðanakönnunni.

Ég fór inn á síðuna og sá mér til mikillar skelfingar að Strákur stóð í 11% og Stelpa í 90%

Jebb þetta gera eins og glöggir lesendur sjá 101% en svona er það þá bara,það er til meira en 100% 8|

Auðvitað þurfti ég svo að breyta smá könnuninni smá,það er að segja mér í vil.... og.....

Já þið hefðuð átt að sjá svipinn á konunni þegar hún sá þetta,þannig að þessu var bara breytt aftur og ætla ég aldrei að gera svona lagað aftur :^)

Miðvikudaginn síðastliðinn áttum við þann merka áfanga að vera búin að vera gift í 5.ár sem þýðir að við héldum upp á trébrúðkaup.Þessi tími er búinn að vera æðislegur og margt búið að gerast í okkar lífi á þessum tíma sem bæði hefur verið erfitt,skemmtilegt,leiðinlegt og létt,en uppúr stendur frábær tími og geri ég mér grein fyrir því að án kellunar væri ég ekkert á við það sem ég er í dag........"hummmm ætli ég væri þá léttari :$ " Var farið út að borða í tilefni dagsinns og einnig að halda upp á það að hún Silla amma hefði orðið 80 ára þennan sama dag.

Leið okkar lá á rosalega flottan stað sem heitir Bryggery Skovlyst og er hér í nágrenninu,aðeins inni í skógi og bruggar allt sitt sjálfur og svolítil stemmning í kringum staðinn.

Ég var búinn að bíða í ofvæni eftir þessu kvöldi,en þeim tókst einhvern veginn að klúðra þessu þannig að stemmarinn datt pínu niður,góður matur,flottur staðu,góð þjónusta nema hvað þarna var heldur mikið að gera fyrir þessi grey og var biðin eftir matnum frekar leiðinleg en ég á pottþétt eftir að fara þarna aftur...............eiga ekki allir skilið annan séns.

 

Fróðleiksmoli dagsinns:Þegar þú lýtur fram hjá göllum maka,er makinn að gera slikt hið sama


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 15:47:23 / hansen_i_dk

Jæja þá má kalla þá NASISTA

Nýfallinn dómur

Saksóknari í Kaupmannahöfn hefur komist að því að félagar í Danska þjóðarflokknum hafi ekki gerst sekir um kynþáttahatur þegar þeir líktu slæðum múslíma við hakakrossinn og múslímum við nasista.

Þetta er sem ég segi,þeir eru að mínu mati litlu ef einhverju skárri en bölvaðir nasistarnir.

Vilja einungis eina trú og allt sem ekki er eins og þeirra á að drepa ef maður fer eftir þeim klikkuðustu í þeirra röðum.

Var að vinna með einum hérna fyrstu dagana og beið eftir að vera sargaður og skilinn eftir í einhverjum ruslagámi.

Annars er bara búið að vera fínt veður ca.20 gráður,smá vindur en bara gott.

Já og svo rakst ég á það enn og aftur,umræðuna hvað eigi að gara við Kolaportið.....

Auðvitað á að nota húsið,svæðið eða hvað þeir vilja undir eitthvað annað en allt sem ógeðslegt er og enginn vill en kaupir samt.

Hef aldrei fundið aðra eins lykt fyrr né seinna,svona Kolólykt.....

Málið er að einu sinni þegar ég var ungur,það er að segja fyrir langa löngu var gaman að fara í Kolaportið en núna er þetta allt eins,sama draslið bás eftir bás og kostar stundum meir en útúr búð og þá er ég búinn að athuga það og um er að ræða sérstaklega einn bás með feitum,sveittum karli sem er með allt of stórt nef miðað við hæð.

 

Fróðleiksmoli dagsinns:Upphaf orðsins "fjölmiðill" er að finna frá 1437 þegar fyrsti miðillinn hóf að fá fleiri en einn einstakling á skyggnilýsingarfund. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 09:29:13 / hansen_i_dk

Mikið í fréttum þessa dagana

Jæja þá er komið að því að bulla eitthvað smá þar sem maður hefur smá lausann tíma.

Maður er búinn að vera að vinna,borða,skíta og allan andskotann síðan síðast..... já og lesa blöðin.

Það sem hefur fengið hárin til að rísa hvað mest er árásin á 10 ára gamla stelpu hér rétt hjá okkur eða nánar tiltekið í Hellerup,hún fannst um hábjartan dag í undirgöngum þríhöfuðkúpubrotin :cry: og talið er að einhver geðsjúkur einstaklingur gangi laus hummmm held að enginn með fullu viti ráðist á 10 ára gamla stelpu,höfuðkúpubrjóti hana og skilji hana eftir í blóði sínu.

Svo var það líbanskur svíi sem drap kærustuna sína hér rétt við Fredrikssund um daginn og er löggan enn að leita að honum.

Síðast en ekki síst er það nú samt frá Íslandi.

Hvanney SF frá Hornafirði sem tekin var með ólögleg veiðarfæri í íslenskri landhelgi.

SKAMM SKAMM SKAMM svo erum við alltaf að tala um sjóræningja dallana sem eru að ráðast á fiskinn okkar,með ólögleg veiðarfæri og ruddar í alla staði.

Ég tel að Hornfirðingar allir séu dæmdir með gjörðum þessa skipstjóra sem gripinn var og eru Hornfirðingar þar með ræningjar,ruddar og dusilmenni.

Enn og aftur SKAMM SKAMM SKAMM :evil::evil::evil:

Ég er hins vegar búinn að láta gamlann draum rætast og keypti handa okkur skútu um daginn sem ég samt sendi til íslands með ódýrt þvottaduft (þið vitið hvað allt er ódýrara í DK)

Nei haldiði ekki að hún hafi verið tekin af mér og mér tjáð að þvottaduftið mitt sé allt annað sem ég man ekki hvað var,en ólöglegt var það.8|

Þetta vonandi fer að leysast þannig að ég geti boðið útvöldum í smá siglingu ;)

Annars bara allt gott að frétta af okkur.

 

 

Fróðleiksmoli dagsinns fellur niður í dag en hrós dagsinns fær Lögregluembættið á íslandi,landhelgisgæslan og allir þeir sem stóðu að fíkniefnatökunni á Fáskrúðsfirði


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:31:58 / hansen_i_dk

3,tilraun

Jæja þá kallinn ekkert smá sniðugur núna og skrifar fyrst í word,save,copy og svo paste á þessa helv... ands.... djö.... síðu. :klikk:

Varð ekkert smá pist í gær þegar ég var að reyna að setja inn einhverja þá lengstu færslu sem sést hefur á blogg síðu íslen... úps sorry ég meina dana.

Ég skrifaði færslu tvisar og í bæði skiptin hvarf allt eins og hendi væri veifað og ég sá á eftir allri vinnunni út Latyrushaven,til hægri út Blomsterhaven,þaðan til vinstri og út smörumparkvej.8|

Alla vega þá er nóg komið af harmakveinum í bili en eitt er víst að ég á eftir að fella nokkur tár í hljóði.

Ég sá flotta grein í nýju lífi um slysavarnarskólann sem skrifuð er af ungri stelpu sem hefur flotta sýn á íslenska sjómenn og þeirra störf og einnig hef ég heyrt að hann Hilmar vinur minn sé að fara að taka á móti orðu sem aldrei hefur verið veitt utan skotlands fyrr,áfram Hilmar og til hamingju með þetta.

Helgin var tekin í rólegheit og skiptir engu hvað þið lesið á síðunni hjá Andreu,þá var það ekki bara ég sem lá í leti......held ég hmmm.Held að eini fjölskyldu meðlimurinn sem hreyfði sig eitthvað að ráðu um helgina sé ófæddur sonur minn :haha:

Mínir strákar tóku F1 með stæl og var það ekkert smá skemmtileg viðbót við titilinn sem Ferrari fékk fyrir keppni bílasmiða...;)

Annars er bara fínt að frétta,Andrea er víst farin að geta gert sig svolítið skiljanlega í leikskólanum og snakkar dönsku þar eins og herforingi...eða allavega eitthvað pínu.

Fólkið í vinnunni hjá mér talar bara dönsku, nema á föstudögum fæ ég pásu og þá tölum við ensku.Held að ég merki dagamun á skilningi mínum á þessu kartöflumáli :$

Síðastliðinn föstudag var svo epladagur hér í Danmörku og var allt kapp lagt á að gera sem flesta rétti þar sem epli spiluðu stórt hlutverk og var dagurinn frekar cool.

Erum reyndar að reyna að gera eitthvað úr öllum eplunum sem við notuðum til að skreyta mötuneytið,sem eru svona ca.90.kg

Fróðleiksmoli dagsinns: Þegar björn veit að veiðimenn elta hann til að skera af honum eistun og nota í lyf,bítur hann sjálfur af sér punginn og skilur hann eftir handa veiðimönnunum.........hahahahaha

PS.þetta sagði sjálfur meistari Leonardo Da Vici

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 20:21:17 / hansen_i_dk

Dansk musik

Jebbs ég hefði aldrey trúað hvað ég er að fíla danska tónlist.

Núna er ég fastur í tölvunni að hlusta en ætti öllu samkvæmt að vera sofnaður.

Það er meistari Johnny Delux og sænsk snót að nafni Anna Nordell sem festu mig hér að þessu sinni og Vááá hvað ég er að fíla þetta :haha:

Annars held ég bara að það sé búið að lengja suamarið....jebb 25+ og blankalog og svo var líka heiðskírt,bara snilld.

Fórum og náðum í Andreu á leikskólann eftir vinnu,svona um svipað leyti og íslendingar borða sinn frokost.Guðrún fór á Hjólinu og þarf oðið að hjóla svona pínu hjólbeinótt ;) og ég á línuskautunum og meira segja berfættur í þeim og þess vegna vantar á mig annan hælinn,mæli ekki með sokkaleysi á línuskautum.

Þegar Andrea var komin í hópinn var haldið af stað og BÚMM.

Ég steinlá á rassgatið og hélt svei mér þá að ég væri kominn með tvær tungur 8| ,en nei nei þá var þetta bara rófubeinið,þegar búið var að kyngja því og blóta smá á íslensku og smá á ensku var haldið af stað aftur.

Ferðin í búðina og heim gékk tíðindalítið fyrir sig og allir eru uppréttir en ég er kannski svona smá stirður þar sem ég þurfti að glíma við einu brekkuna í Smörum að ég held.

Þegar heim var komið komu Ingunn og Ensó í smá heimsókn sem var bara snilld vegna þess að Ensó er einn fallegasti og bansalegasti hundur allra tíma og hann og Andrea voru hér uppi um alla veggi,geggjað stuð.

Annars er víst epladagur hjá mér í vinnunni á morgun sem þýðir að við verðum með eplaþema.

Geggjuð stemmning fyrir þessu í vinnunni og allir spenntir að "spise æble".

 

Fróðleiksmoli dagsinns:Kópar grásela fá feitustu mjólkina,það er að segja hún er AÐEINS BARA 52% eða bara 14% feitari en rjómi sem við notum til að þeyta.


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 20:02:11 / hansen_i_dk

Snakker du dansk

Jæja dagurinn búinn og ég þurfti sko að brúka dönskuna mína í dag og fórst það betur úr hendi en ég hefði nokkurn tímann þorað að vona.

Greip nú samt í íslensku og ensku ef ég var strand :)

Annars er ég búinn að fara í skógarferð í dag.

Það er ekki vegna þess að ég ákvað það sjálfur heldur var það Andrea mín sem bauð okkur í skóginn "sinn" þar sem hún er búin að vera það sem af er vikunnar og verður út föstudaginn,þar sem þau eru að skoða dýrin og læra um náttúruna.

Þau á deildinni hennar voru víst búin að gera fínann kofa úr greinum......

ENN.....

Já hún Andrea þurfti aðeins að laga eitthvað og snurfusa og úbbs..8|

Kofinn féll samann eins og spilaborg :haha:

Þau hafa þá eitthvað að gera út vikuna,veit samt ekki alveg hvaðan hún hefur þessa                  "brussutagta" :S

Annars er ég búinn að sitja við tölvuna MJÖG lengi með headphona á hausnum og í eigin heimi að googla,leita og hlusta á meistara KIM LARSEN sem er bara brilli.

Maðurinn er nú kannski ekkert augnayndi en vá hvað það er gaman að hlusta og horfa á kallinn.

 Ég held að Desmund tutu sé bara svei mér þá efni í fullorðins klámstjörnu ef miða má við myndirnar sem birst hafa á blogginu hans.

Það hefur allavega verið MJÖG gaman við busunina hjá þeim þarna í þukklinu.(öfund) 

 Á morgun er svo 2.dagur í dönskukennslu í vinnunni.

Fróðleiksmolinn að þessu sinni er frá miðaldra þjóni sem ég vinn með,en spurning hvort Guðrún hleypi mér eitthvað í svona dönskunám,held að öruggast sé fyrir mig að bíða bara aðeins lengur eftir bréfi frá kommununi.:$ 

 

Fróðleiksmoli dagsinns:

Ef læra á dönsku hratt og örugglega á maður að lesa blöðin og sofa hjá stelpunum.:^)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 14:16:29 / hansen_i_dk

LORT...LORT....LORT

Jæja þá er komið að því sem hlaut að gerast en ég reiknaði kannski ekki með að þetta kæmi kannski alveg svona fljótt.....

Jebb,vinnufélagar mínir tilkynntu mér formlega í dag að á morgun hæfist mín dönskukennsla.

Ég sagði þeim eins og væri að ég vissi ekki enn hvenær dönskukennslan hæfist og þeir svöruðu strax að það væri á morgun og ég vissi hvorki upp né niður og hugsaði með mér að annað hvort skildu þeir ekki mína lýtalausu :haha: ensku eða þá að einhver misskilningur væri á milli okkar,

en þá sögðu þeir að á morgun og dagana eftir það yrði einungis töluð danska í eldhúsinu !!!!

WHAT........jæja ég fékk í magann hugsaði í smá stund og sagði svo borubrattur eins og íslendingi sæmir að það væri on.

Þá sagði eitt þjóna kvikindið að ekki yrði heldur hlustað á ensku.

Það þýðir að ég verð líka að snakka dönsku!!!!!!8|

O....LORT......

Hvernig í ósköpunum gengur dagurinn á morgun fyrir sig?

Held svei mér þá að ég sé að fara að horfa á danskt barnaefni í tv. og reyna að pikka upp smá hreim .Held að það sé best að nota barnaefnið í því vegna þess að þar er ekki talað eins hratt og annars staðar.

Ég má eiginlega ekkert vera að þessu núna þar sem ég þarf að fara að læra og það hratt.

 

Fróðleiksmoli dagsinns: um 600 kg hestur skilar að meðaltali 24.hestöflum og hananú eða kylling ;)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 14:28:45 / hansen_i_dk

PYLSUR....HEHEHE

;) Já pylsur verða það heillin mín.

Ég á víst að sjá um að næra þessa fjölsyldu núna og það sem eftir lifir skilst mér á þessari elsku sem las víst bloggið mitt og það verða pylsur í kvöld :haha:

Annars er ég enn á lífi og á litla stelpu sem fór í skógarferð í dag með leikskólanum sínum og þegar við náðum í hana á leikskólann,já þá var mín frekar drullug.

Þetta var líka svona geðveikt gaman hjá þeim,þau fengu nefnilega að hoppa og sitja í pollum og leika sér í drullunni sem ég efasst ekki um að hafi verið frábært.

Annars svo ég svari nú Áslaugu frænku þá er ég svo mikill feministi 8|  jebb feministi.

Feministi er nefnilega ekki rauðsokka,heldur eru feministar jafnréttissinnar,

en bara ekki á íslandi þar sem "feministar vilja konur í öll helstu embætti,heimsyfirráð og dauða yfir öllum körlum"

Ég segi að allir séu jafnir og líka konur,bara ekki eins verðmætar 8)

Vá hvað ég held að ég sé að taka mér eigin gröf núna og ætla þess vegna að hætta.

 

Fróðleiksmoli dagsins:Þegar konur verða reiðar er best að hlaupa HRATT !!!! 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 16:24:52 / hansen_i_dk

Prumppppp.....

Jæja þá er Formulan þessa helgi að baki og ég er ekkert alltof glaður með mína kappa þessa daga,massa í drasli svotil strax í byrjun og raikkonen lét hamilton taka fram úr sér á stað sem á ekki að vera hægt að fara fram ú Ferrari bíl....hann var alveg sofandi kall anginn.

Þetta er nóg af formulunni að sinni.:whut:

Þetta er svolítið skemmtilegt útsýni sem ég hef núna á meðan ég sit hér og pikka á tölvuna.

Konan mín ástkæra til næstum 5 ára,það er að segja GIFT í almost 5 ÁR.

stendur núna fyrir framan eldavélina og er að elda og ég er ekki að grínast :)

Þetta er svolítið næs að vera að eignast svona EIGINKONU (eldabusku) ;)

Hún verður brjáluð þegar hún les þetta og ef ég ekki verð búinn að færa inn færslu aftur á svipuðum tíma á morgun, þá vinsamlegast hafiði samband við nákomna ættingja og gerið viðvart um væntanlegt brotthvarf mitt.

stutt nún þar sem ég ætla að henda mér á sófann og slaka vel á og fara svo upp í rúm snemma og slaka meira á :haha:

 

Fróðleiksmoli dagsinns:Rækjusalat sem geymt er í kæli of lengi skemmist oojjjjj

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 09:58:32 / hansen_i_dk

Svindlað í strætó......

Ég trúi varla því sem mað ur les á mbl í dag,þar er sagt frá aðilum sem gera ýmislegt til að forðast það að borga hvað.....held 200 krónur í strætó.

Er fátækt á íslandi svona ægileg að fólk hafi ekki efni á strætóferð ?

Þetta held ég að sé nákvæmlega það sem einkennir íslendinga,geta ekki farið eftir reglum.

Þeir sem lesa þetta hugsa eflaust með sérhversu kaldhæðið að ég sé að tala um reglur :)

En málið er að þó svo að maður hafi gert ýmislegt held ég að maður gerðist ekki þjófur fyrir upphæð sem ekki er hægt að hafa í seðli, ég meina kommon.

Þetta er ástæðan fyrir því að stjórnvöld á íslandi gefast alltaf upp með allt gott sem reynt er að gera vegna þess að íslendingar mega aldrei sjá að aðrir en ÉG fái líka frítt í strætó eða hvaða hlunnindi sem, sem öðrum er ætluð.

Held að ég nenni samt ekki að hugsa meira um svona vitleysinga.

Ég hélt um daginn að veturinn væri að nálgast og var nærri farinn að taka síðbrækurnar fram og brúka þær,en hvað !!!

Daginn eftir að 4 gráður voru um morguninn,þá fór hitinn upp 22 gráður þann dag og 25 þann næsta.ég bara er ekki vanur svona.ég er vanur því að þegar hitastig fer niður í kalt þá sé bara kominn vetur og best að brúka hlýtt.

Var svolítið ringlaður með svona hringl.

Hér í DK gengur lífið sinn vanagang og hérna er þetta eins og á íslandi vinna,borða,sofa nema hvað hér er hægt að gera eitthvað sér til dundurs eftir vinnu þar sem maður er ekki búinn að vinna frá sér ráð og rænu og klukkan er líka bara ekki neit neitt þegar vinnudeginum líkur.

Jæja svo var það þessi blessaði bleiki litur sem var á síðunni. BARA GRÍN :haha: 

 

Fróðleiksmoli dagsinns: Strumpar verða að meðaltali 19 ára og verða kynþroska við 2 ára aldur

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 14:07:23 / hansen_i_dk

Sumarið komið aftur........

Jæja þá,eftir mikið andlegt sjokk á hitastiginu í gærmorgunn rættist nú heldur betur úr deginum og fór hitinn í 22 gráður,og veðrið í dag er svipað nema hvað það voru 14 gráður í morgunn.

Ég meina 10 gráður til eða frá

Jæja þá er komið að einhverju bulli og held ég að best sé að segja ykkur frá einhverju flottasta mötuneyti sem ég hef á ævinni séð.

Þetta mötuneyti er eins og íslendingar fari í hádeginu á hlaðborð á Nordica.

Það er veitingastaður á efstu hæð fyrir forstjórann og yfirmenn og þjónar og hvað eina og fyrir herlegheitin eru borgaðar heilar 25 krónur.

Ég hef nú áður unnið í mötuneyti sem hefur ekkert verið að heilla mann,það er að segja mötuneytiseldamennska,en þetta er bara flott.

Greinilegt að Siemens á fullt rassgat af pening sem þeir ekki vita hvernig á að losna við.

Hef samt heyrt að þetta sé gert svona til að halda starfsmönnum glöðum og er þetta bara skattlaus fríðindi sem er reyndar mjög sniðugt.

 

Fróðleiksmoli dagsinns:

Tunga steypireyðs getur orðið allt að 12 fermetrar og vigtað einhver 2 tonn

Hitt er svo annað að argentínsk skarfönd er hins vegar með getnaðarlim sem er 42cm


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 13:42:00 / hansen_i_dk

BRrrrr.......

Hélt ég fengi sjokk í morgun.

Þegar ég var kominn út,þá tók ég eftir því að það rauk af andardrættinum.

Jebb ég tók ekkert eftir því hversu kalt var sökum þreytu en mælirinn á bílnum sýndi einungis 4.gráður á celsíus.Ég sem hélt að það ætti að vera hlýrra á þessum tíma en svona er þetta víst,ekki alltaf sumar.

Hlakka ekkert smá til að fara í dönskukennsluna.

Maður veit ekkert hvort verið sé að slámanni gullhamra eða segja manni að maður hafi bætt á sig,þannig að ég brosi bara og tek þessu öllu seem hrósi.

Annars skilur maður nú furðu margt sem sagt er ef þessi grei eru ekki að flýta sér.

Andrea var ekkert smá dugleg á leikskólanum í dag sem er víst 3.dagur,en þá var hún alein allan daginn sem er kannski eins gott þar sem það verður skógarvika í næstu viku og fara þau þá á mánudagsmorgunn út í skóg og verða þar allan daginn og einnig á þriðjud. og miðvikudagurinn endar svo með því að foreldrunum verður boðið í lautarferð síðdegis á miðvikudag.

Guðrún fór og lét kíkja á strákinn okkar núna í dag og reyndist allt vera í besta.

Ég segi strákur þó læknarnir segi stelpa og Guðrún líka.

Hann verður bara svona metró gæi sem er með lítið tippi eða þá samkynhneigður,hvort heldur sem er á ég ekki eftir að láta pjakkinn í friði þegar hann lætur sjá sig og stríða honum mikið á því hversu kvenlegur hann var í móðurkviði :)

Endilega takiði þátt í skoðanakönnuninni sem ég set hér til hliðar gaman að sjá hvort maður sé í algjörum minnihluta :$

fróðleikur dagsinns að þessu sinni er í boði Lýðheilsustöðvarinnar

Stúlkur drekka minna af gosi og meira af vatni en strákar og velja fituminni vörur. Mjólkurneysla þeirra er hins vegar lítil, fiskneyslan er hverfandi og næringarefni í fæði bera þess merki. Kalk, D-vítamín, járn, fólasín og joð eru dæmi um nauðsynleg efni sem eru undir ráðleggingum í fæði stúlkna.

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill